Erlent samstarf

Norðurlöndin

Síldarbærinn SiglufjörðurSameiginleg frímerkjaútgáfa Norðurlandanna ber yfirskriftina Top of the World of Stamps. Aðilar að samstarfinu eru auk Íslands: Svíþjóð, Noregur, Danmörk, Finnland, Grænland, Færeyjar og Álandseyjar.

Frímerkin eru gefin út annað hvert ár, á sléttri tölu.

http://www.topoftheworld.nu/

 

Evrópa

SkógarPostEurop, samband opinberra póstrekenda í Evrópu, stendur á bak við sameiginlega útgáfu Evrópufrímerkja á hverju ári. Á hverju ári er ákveðið þema á útgáfunni og kosið er um fallegasta frímerkið í vefkosningu.

http://www.posteurop.org/


Sepac

Sepac útgáfa 2009 SkaftafellSEPAC stendur fyrir Small European Postal Administration Cooperation.

SEPAC-útgáfan er sameiginleg útgáfa fjórtán eyríkja og smáþjóða: Íslands, Færeyja, Álandseyja, Grænlands, Monaco, Lichtensten, Lúxemborg, Gíbraltar, Mön, Guernsey, Jersey, San Marínó Möltu og Vatikansins.

Stefnt er að þremur sameiginlegum útgáfum, sem koma munu annað hvort ár og tengjast landslagi og staðháttum.

http://www.sepacstamps.eu/