17.02.2012

Samkeppni um fallegasta SEPAC frímerkið 2011

SEPAC er skammstöfun á Small European Postal Administrations Cooperation. SEPAC útgáfan er sameiginleg útgáfa fjórtán eyríkja og smáþjóða: Íslands, Færeyja, Álandseyja, Grænlands, Monaco, Lichtensten, Lúxemborg, Gíbraltar, Mön, Guernsey, Jersey, San Marínó,  Möltu og Vatíkaninu. Fyrri útgáfur komu út 2007 og 2009 og árið 2011 kom út sú þriðja og síðasta. Útgáfurnar tengjast landslagi og staðháttum. Myndefni íslensku útgáfunnar 2011 er Snæfellsnesþjóðgarður.

Nú getur þú tekið þátt í kosningu um fallegasta SEPAC frímerkið 2011 og átt möguleika á glæsilegum vinningum. Kosningin stendur yfir til 1. maí 2012.

  • Fyrsti vinningur er ársmappa frá öllum póststjórnum sem tóku þátt í SEPAC útgáfunni 2011 (verðmæti 600 €)
  • Annar vinningur er 7 ársmöppur að eigin vali
  • Þriðji vinningur er 3 ársmöppur að eigin vali.

Það er því til mikils að vinna!

Kíktu inn á www.sepacstamps.eu og kjóstu það frímerki sem þér þykir fallegast

Til baka